Fyrirtæki innan vébanda Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hafa markað sér stefnu í samfélagsábyrgð sem grundvallast á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
Við erum hluti af samfélagi og berum ábyrgð í samræmi við það. Íslenskur sjávarútvegur vill rísa undir þeirri ábyrgð og auka gagnsæi.
Undirritun er ekki endir. Undirritun er upphaf vegferðar til að gera sjávarútveginn enn betri. Þótt verkefnin og markmiðin séu margþætt, og fyrirtækin komin mislangt á veg, hafa þau í sameiningu ákveðið að fylgja ákveðinni stefnu. Hún verður það leiðarljós sem samfélag, umhverfi og fyrirtæki munu njóta góðs af þegar lagt verður af stað til móts við framtíðina.
Einboðið er að það tekur fyrirtæki mislangan tíma að innleiða stefnuna í reksturinn og metið verður reglulega hvernig fyrirtækjunum tekst upp í þeirri vinnu. Niðurstöður mats verða svo birtar sem ófjárhagslegar upplýsingar frá viðkomandi fyrirtæki.
Með því að smella á rauðu punktana á kortinu hér fyrir neðan má sjá nöfn á sjávarútvegsfyrirtækjum sem skrifað hafa undir stefnu sjávarútvegs í samfélagsábyrgð.
Forsvarsmaður fyrirtækis, sem ritar undir stefnuna, ber ábyrgð á að henni sé framfylgt